fbpx

Þú finnur muninn á bragðinu og lyktinni!

Allar 7 barnamáltíðirnar okkar eru náttúrulegar og án allra aukaefna og rotvarnarefna - með engum viðbættum sykri eða salti. Bara 100% lífrænn, heiðarlegur matur - frábært bragð og mjúk en mikil áferð - alveg eins og heimagert!

Psst... fyrir börn yfir 1 árs, má alveg bæta við örlitlu salti.

Bon appetite!

„Umbúðirnar okkar eru í laginu eins og lítil skál og hvetja til mötunar með skeið, í þeim tilgangi að stuðla að hreyfiþroska og matargleði! Skálin er auðvitað 100% BPA laus og hentar bæði í örbylgjuofn og uppþvottavél“

Silvia Wulff
Móðir og stofnandi

Engu bætt við nema ást

LoveMade býður upp á lífrænan barnamat sem gefur foreldrum tækifæri á hollum og bragðgóðum mat fyrir krílin þegar tíminn er takmarkaður. Við afhendum einfaldleika: heiðarlegan, lífrænan og ljúffengan barnamat fullan af næringarefnum, náttúrulegri áferð og fullt af ást. LoveMade, búið til af umhyggju fyrir lífinu.

Lífrænn, ljúffengur og heilnæmur

Allar okkar vörur eru 100% lífrænar!

Rannsóknir sýna að fyrstu tvö árin í lífi barns eru mjög mikilvæg með tilliti til þess hvernig bragðlaukar og fæðuval þróast síðar á ævinni. Þess vegna verðum við að tryggja góða matarupplifun frá upphafi!

Þegar við þróuðum uppskriftirnar okkar var vöxtur barna og næringarþörf í forgangi. Þess vegna standa allar máltíðir okkar undir ráðleggingum danska heilbrigðiseftirlitsins um næringu fyrir ungbörn - sem og kröfur danska umhverfis- og matvælaráðuneytisins um gæði og samsetningu næringar.